Hvar voru allir?

15. október, 2008

Um síðustu helgi voru Sergey og Melia á landinu. Þau voru að kenna fyrir DÍH og eru (held ég pottþétt) allir mjög sáttir við þau. DÍH bauð öllum danspörum landsins (sjá hér og hér) að mæta í það sem kallað var ‘Workshop’ síðasta sunndag.

Þarna voru hópæfingar (þar sem hver gat æft eftir sínu höfði) frá 9 um morguninn til 8 um kvöldið. Aðal málið þennan sunnudag var rúmlega 1,5 klukkustunda hóptími/fyrirlestur með Sergey og Meliu um kvöldið. Þrátt fyrir að þetta væri í boði voru bara 2 pör fyrir utan DÍH pörin sem mættu.

Þarna var kjörið tækifæri fyrir ÖLL danspör á Íslandi til að hlusta á hvað eitt af óumdeilanlega bestu danspörum í heimi hafa að segja. En svo virðist sem að mörg íslensk danspör hafi bara engan áhuga á að heyra í þeim.