27. nóvember, 2008
Þetta er áskorun sem ég sendi á DSÍ, vona að stjórn DSÍ taki vel í þetta og taki afstöðu með dönsurum og fara ekki eftir þessum tilmælum IDSF!
—
Í tilefni af Jólamóti Dansráðs Íslands (DÍ) sendi ég áskorun á Dansíþróttasamband Íslands (DSÍ) um að taka skýra afstöðu gagnvart tilmælum Alþjóðlega Dansíþróttasambandsins (IDSF) sem mæla gegn því að pör sem keppa á vegum aðila innan IDSF taki þátt í keppnum sem aðilar utan IDSF, og þá helst aðilar tengdir World Dance Council (WDC), sjái um.
DÍ er aðili að WDC og því má túlka að þau tilmæli sem IDSF hefur beint til aðildarfélaga sinna að keppendur innan DSÍ séu ekki æskilegir á Jólakeppni DÍ. Eins er hægt að nefna keppnir á borð við Dutch Open og fleiri.
Ég skora á Dansíþróttasamband Íslands til að taka skýra afstöðu gagnvart fyrrnefndum tilmælum IDSF.

Sæ´lir, ég hef ekki séð þessi “tilmæli” IDSF og hef ekki tékkað á þessum hlutum í nokkurn tíma en ég held samt að IDSF sé bara á móti keppnum sem eru ekki haldnar í samvinnu eða með samþykki áhugamannasambandsins í hverju landi. Í okkar tilfelli og þá meina ég okkar Íslendinga þá er mjög gott samstarf á milli DSÍ og DÍ sem lýsir sér helst í að meðlimir DÍ starfa mikið með DSÍ á þeim mótum sem DSÍ heldur. Reyndar skil ég ekki afhverju IDSF eða áhugamannasambönd í einhverjum löndum ættu að vera á móti danskeppnum en reyndar er þetta oft út af persónulegum eða pólitískum ástæðum sem ég vona að við hérna á Íslandi reynum að forðast eins og hægt er.
Jújú ég veit það Ragnar, en ég ákvað að nýta tækifærið þegar þessi keppni er haldin til að benda á þessi tilmæli. Þessi tilmæli voru fyrst gefin í kringum Dutch Open keppnina fyrir 3 árum (held það hafi verið fyrir 3 árum), svo hafa ákveðnar stórar keppnir verið flokkaðar undir þessar “bönnuðu” keppnir á list IDSF.
Þú getur lesið aðeins um þetta á slóðinni http://www.idsf.net/index.tpl?style=news&action=newsItem&id=20&jaar=2008.
Þetta er orðið svo fáránlega stórt mál að IDSF er búið að stofna atvinnumannasamtök, IPDSC, og WDC eru komnir með Amateur deild, WDC Amateur League.
Það hafa nú þegar nokkuð pör verið dæmd í bann af aðildarfélögum IDSF fyrir að keppa á þessum “bönnuðu” keppnum, og eitt par frá Danmörku er búið að lýsa því yfir að þau séu hætt að keppa á vegum IDSF, en ekki orðin professional samt. Þú getur lesið um það á slóðinni http://www.dancesportinfo.net/Articles/6045.aspx.
En mér finnst þetta fáránlegt, og þessvegna skoraði ég á DSÍ að fylgja ekki þessum tilmælum.
Ég held það verði seint eða aldrei sem DSÍ muni setja pör í bann fyrir að keppa í Blackpool, Dutch Open eða sambærilegum keppnum sem ekki eru haldnar af IDSF eða aðildarfélögum IDSF. Við ættum frekar að halda okkar striki og efla samvinnu DÍ – Dansráðs Íslands sem er aðildarfélag WDC – World Dance Council (danskennarar) og DSÍ – Dansíþróttasamband Íslands sem er aðildarfélag IDSF – International Dance Sport Federation (dansarar). Ég hef lagt til að það verði stofnað ráð eða nefnd sem myndi fara yfir þá hluti sem hægt væri að hafa meiri samvinnu með og vonandi fer það í gang fljótlega.
Ég er alveg sammála þér í því. Þessvegna held ég að fyrsta skrefið í átt að meiri og betri samvinnu sé að “segja það upphátt” að íslensk pör eigi ekki að líða fyrir það að keppa á opnum, stórum og flottum keppnum.
Viðbrögð DSÍ við áskoruninni voru fín. DSÍ sagðist líta fyrst og fremst á Jólakeppnina sem skemmtun og að þeir styddu alla þá skemmtun sem hefði dans í fyrirrúmi.
DSÍ er ekki búið að segja neitt um stærri mót en Jólakeppnina, og það er það sem vanntar. Skýr svör og skýr áhersla á frekar samvinnu DSÍ og DÍ.