Nóvember, HM mánuðurinn

22. nóvember, 2008

Fyrir tveimur vikum fór fram heimsmeistaramót í 10 dönsum hjá flokki Ungmenna F, þar átti Ísland einn keppanda sem keppir þó fyrir hönd Danmerkur með dansdömu sinni Katrine Nissen, en þetta er Alex Freyr Gunnarsson. Þau náðu þeim frábæra árangri að vera í 3. sæti. Í standard hluta keppninnar voru Alex og Katrine örugg í öðru sætinu, en í latin hlutanum voru þau í flestum dönsum í því 4.

Einnig er nýafstaðið heimsmeistaramótið í flokki Fullorðinna F í Standard dönsum. Mótið var haldið í Vínarborg um síðustu helgi. Tvö íslensk pör kepptu á mótinu og voru það Sigurður Már Atlason með Söru Rós Jakobsdóttir og Hanna Rún Óladóttir með Evgeny Selin.

Hann Rún og Evgeny fóru í 2. umferð og fengu þar 9 merkingar inn í 3. umferð og enduðu þarmeð í 34. sæti, en Siggi og Sara komust ekki upp úr 1. umferðinni og fengu 6 merkingar í þeirri umferð sem skilaði þeim 59. – 60. sæti.