Dagsetningar

18. desember, 2008

Á næsta tímabili (janúar – maí) verða haldnar 4 íslenskar keppnir. Það eru eftirfarandi keppnir:

  • Reykjavík International – 18. janúar
  • Íslandsmeistaramót Latin og Standard – 7. og 8. febrúar
  • Íslandsmeistaramót 10 Dansar - 7. og 8. mars
  • Íslandsmeistaramót í grunnsporum og Bikarmeistaramót – 9. og 10. maí

IDSF stendur fyrir heims- og evrópumeistaramótum og vinna íslensk pör sér rétt á þeim mótum með að ná fyrsta (eða öðru) sæti á Íslandsmeistaramóti. HM í flokki Junior II Latin fer fram 14. febrúar á Ítalíu. Þetta þýðir að pörin sem vinna sér inn keppnisrétt á mótinu hafa 6 eða 7 daga til að skrá sig á mótið, bóka flug, fljúga út og keppa.