Merkt með efnisorðunum:
9. febrúar, 2009
Helgin var góð og Íslandsmeistaramótið var flott. Uppsetningin var til fyrirmyndar og fær Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar stóran plús fyrir að leggja til kastara til að hafa umhverfis gólfið.
Keppni í Unglingaflokkum F og Ungmennaflokkum F var góð, en hún hefur líka verið það síðustu ár. Það sem er merkilegast við helgina var keppni í Fullorðinsflokkunum F. Það þarf að fara mörg ár aftur í tímann til að sjá jafn mikinn fjölda keppenda í þessum flokkum. Þetta þýðir bara eitt: Íslenskar keppnir eru orðnar sterkari. Enda sést það á úrslitunum.
Þetta gefur okkur tækifæri á að gera flottar breytingar! Styrkja stuðningin sem er á bak við þessa flokka. Afrekshópsverkefni DSÍ frá því í haust var glæsilegt, og núna er kominn grundvöllur til að styrkja það starf enn frekar. Það hefur nefnilega verið mikið brottfall hjá íslenskum dönsurum í þessum flokki hingað til.
DSÍ og dansfélögin þurfa að sameinast í því að halda vel utan um þennan hóp. Þau skref sem þarf að stíga fyrir þennan hóp dansara á Íslandi eru til dæmis:
- Opnar æfingar einu sinni í mánuði
- Sameiginlegar þrekæfingar undir handleiðslu þeirra sem vit hafa á þrekþjálfun
- Hópefli til að þétta og styrkja íslenska hópinn
Allt eru þetta einfaldir hlutir sem þurfa ekki að kosta mikið ef allir leggjast á eitt, en allt hlutir sem geta skipt sköpum í því að styrkja danspörin sem keppa í efsta styrkleikaflokki.

já ég er alveg sammála þér í þessu. ég veit að ÍR er með næstu opnu æfingu og svo var ég að heyra að Hvönn ætlaði að hafa æfinguna eftir það. öll félögin þurfa að taka þátt í þessu svo að þetta virki. Þessar hugmyndir þínar þétta hópinn saman sem er bara gott. Mér finnst líka að danskrakkarnir eiga að gera eitthvað saman til að þétta þennan hóp. Þessi litli hópur sem við erum og það þekkja líka allir alla, næstum. vantar bara hálfgert nemendafélag. En ég vona að allir séu til í að leggja sitt að mörkum til að koma þessu í gang og halda þessu, ég sé bara eitthvað gott út úr þessu.
kv. Jónsi
gleymdi að segja að ég er ekki bara að tala um afrekshópinn heldur heildina alla líka
Afhverju stofnið þið ekki félag íslenskra keppnisdansara? Farið með þetta alla leið, haldið fundi og komið fram sem einn aðili gagnvart DSÍ. Getið líka verið með hittinga til þess að efla andann. Þið þurfið ekki alltaf að bíða eftir að DSÍ geri hlutina fyrir ykkur.
Það voru hugmyndir um að stofna félag fyrir sirka ári síðan. Það félag var meira að segja komið á smá skrið, en það náðist ekki nógu góð samstaða um það hjá dönsurunum. Fólk ekki alveg sammála hvernig ætti að framkvæma þetta.
Það er samt alveg spurning um að reyna aftur!