Kirill og Elvira segja skilið við IDSF

2. mars, 2009

Kirill Belorukov & Elvira Skrylnikova hafa tekið ákvörðun um að segja skilið við Rússneska dansíþróttasambandið (DSFR), sem er partur af IDSF. Þarmeð hafa þau sagt skilið við IDSF.

Kirill og Elivra voru dæmd í 1 árs bann á síðasta ári af DSFR, fyrir að keppa á Dutch Open í Hollandi og á WDC World Youth Championship. Þau hafa verið sigurvegarar í flestum af stærstu keppnum heims í flokki Youth (Undir 21).