Nino og Nataliya split

19. mars, 2009

Nino Langella & Nataliya Maidiuk hafa tekið ákvörðun um að binda enda á danssamband sitt. Þau hafa átt farsæl rúm 4 ár saman, og náð meðal annars að sigra flokka Undir 21 í Blackpool og International, og vera í undanúrslitum á bæði heims- og evrópumeistaramótum.

Þau hafa einnig keppt til úrslita í mörgum af sterkustu mótum heims.