Blackpool 2009

30. maí, 2009

mack

Í liðinni viku fór fram stærsta danskeppni í heimi í Blackpool á Englandi. Þar voru saman komin mörg hundruð pör til að keppa um eina eftirsóttustu titla í dansheiminum. Er þetta í 84. skiptið sem keppnin er haldin.

Nokkrir Íslendingar kepptu í ár eins og fyrri ár.

Sigurvegarar
Michal Malitowski og Joanna Leunis (Pólland) báru sigur úr bítum í flokki Professional Latin, en þau eru sigurvegararnir frá því í fyrra. Í sama flokki í Ballroom dönsum voru það Mirko Gozzoli & Alessia Betti (Ítalía) sem sigruðu.

Í flokki Amateur Latin voru það heimsmeistararnir Stefano Di Filippo og Anna Melnikova (Ítalía) sem sigruðu, en í kjölfar sigursins tilkynntu þau einnig að þau ætla ekki að dansa meira saman heldur finna sér nýja dansfélaga. Vegna meiðsla þurfti sigurstranglegasta parið í flokki Amateur Ballroom að hætta keppni í undanúrslitum og voru það því Andrea Ghigiarelli & Sara Andracchio sem sigruðu í ár. Emanuel Valeri & Tania Kehlet sem kennt hafa á Íslandi urðu í 2. sæti.

Íslenskir keppendur
Í ár keppti Ásta Sigvaldadóttir sem atvinnumaður ásamt dansfélaga sínum Przemeck Lowiki (Pólland) og náðu þá 2. sætinu í flokki Professional Rising Star Latin og enduðu í 22. – 23. sæti í flokki Professional Latin.

Gunnar Hrafn Gunnarson ásamt Anne Bruun Baden kepptu bæði í flokki Amateur Rising Star Latin og Amateur Latin. Í Amateur Rising Star vour þau 111. – 121. sæti en í Amateur Latin í 116. – 124. sæti.