Pistill 10. maí

11. maí, 2009

Að sjálfsögðu þurfum við að hafa reglur til þess að fara eftir því annars verður dansinn bara rugl og vitleysa því við viljum alltaf fara lengra og lengra.  En reglur eru til þess að hjálpa okkur að gera dansinn eins og við viljum hafa hann.  Við þurfum að nýta reglurnar sem við höfum á réttan hátt.  Hvernig er hægt að réttlæta að juvenile skyrtur eigi að vera með hnöppum og megi ekki hafa nærbuxur fastar við.  Hvaða áhrif hefur það á dansinn hvort skyrtur eru með hnöppum eða rennilás.  Hvaða máli skiptir það?  Hjálpar það strákunum í dansinum ef nærbuxur eru fastar við skyrturnar?  Verða þeir betri við það?  Það eina sem ég sé er að við verðum með fullt af strákum úti á gólfi með skyrturnar upp úr buxunum.
 
Reyndar finnst mér klæðaeftirlit og sporaeftirlit á keppnum hjá okkur vera hálfgert grín.  Báðir aðilar eru starfandi þjálfarar.  Hvernig er hægt að ætlast til þess að báðir aðilar geri athugasemdir við pör sem þessir aðilar eru að kenna eða þjálfa?  Það væri gaman að athuga hvort þessir aðilar hafi nokkurn tíman gert athugasemdir við eða kært sín pör.
 
Ég er með nokkar hugmyndir til þess að gera eftirlit með reglum eðlilegra.  Til dæmis að fá óháðan aðila sem er ekki með pör í keppnum til þess að sjá bæði um klæða og sporaeftirlit.  Þetta þyrfti þá að vera aðili sem væri tilbúinn að taka þetta að sér af alvöru.  Svo þyrftum við að vera með einhvers konar kerfi á kvörtunum og kærum.  Í dag er þetta bara hips og haps.  Pör og félög þurfa að fá aðvaranir áður en þeim er til dæmis vikið úr keppni eða refsað með því að setja það í síðasta sæti  í þeim dansi sem þau dansa eitthvað spor eða hreyfingu sem er ekki leyfð.  Mér finnst það hættulægt fordæmi sem var gefið á laugardaginn þegar pari var veitt síðasta sætið í dansi sem þau gerðu óleyfilega hreyfingu.  Hvað verður um næsta par sem verður kært?  Munu einhverjir hugsa með sér að ef pörin fyrir ofan eru kærð og eitthvað kemur í ljós þá komast þau ofar í röðinni?  Verður kært fyrir hluti sem hafa verið leyfðir í mörg ár?  
 
Jæja nóg um þessa hluti.  Mér fannst rosalega gaman að sjá sum pörin og suma hópana um helgina.  Ég ætla að fara í gegnum  suma hópana og minnast á þá hluti sem mér fannst athyglisverðastir.
 
Unglingar I K – nokkur pör hérna sem eru á góðri siglingu og eiga framtíðina fyrir sér í dansinum.  Verður gaman að sjá þau leggja enn meira á sig og byrja að keppa í F í haust.
 
Unglingar II K – Efstu 3 pörin eru í raun F pör þar sem þau hafa flest ef ekki öll byrjað að æfa F.  Þau verða góð viðbót við F flokkana í haust.
 
Ungmenni K – Var gaman að sjá ferskt blóð í þessum flokki með pari frá Akureyri.  Veit ekkert um þetta par en vona að þau geti orðið vítamínsprauta fyrir dansinn á Akureyri.  Hérna eru líka pör sem byrja að æfa frjálsar lotur í sumar.
 
Unglingar II F – Valentín og Tinna á góðri siglingu.  Alltaf gott að lenda ekki í fyrsta sæti af og til og koma svo til baka tvíefld.  Til hamingju Sigmar og Maren með annað sætið í ballroominu.  
 
Ungmenni F – Siggi og Sara enn á ný öruggir sigurvegarar.  Gaman að sjá hvað Freyþór og Eyrún eru á góðri siglingu.
 
Fullorðnir F – Siggi Þór og Hanna virðast vera búin að festa sig í sessi sem sigurvegarar.  Væri gaman að vita hvaða langtímamarkmið þau hafa sett sér.  Til þess að ná alvöru árangri í dansi þá þarf að hafa þolinmæði og þrautseigju.  Jón Eyþór og Denise góð í latininu en dálítið stíf í ballroominu.  Hef talað um þetta við Jón Eyþór og er hann örugglega að vinna í þessu.  Væri gaman að vita hvað Aðalsteini og Rakeli finnst um að lenda aftur í 3. sæti.  Ég vona þeirra vegna að markmiðin þeirra séu að lenda ofar.  
 
Ég er byrjaður að undirbúa prógrammið fyrir sumarið hjá mínum krökkum og er mikill hugur í sumum.  Ég vona að aðrir hafi líka hugsað sér að nota sumarið í stífar æfingar til þess að ná forskoti á keppinautana eða ná forskotinu sem keppinautarnir hafa á þá.  Styrktaræfingar, tækniæfingar og gestakennarar munu einkenna sumarið.
 
Ég er strax farinn að hlakka til haustsins og sjá hvernig krakkarnir hafa notað sumarið.  Vona að við verðum með nokkur pör á International í október.  Verið nú dugleg í sumar og munið að þið uppskerið eins og þið sáið.
 
Kv. Raggi