Núna um helgina var Copenhagen Open haldin og voru að vanda mörg pör frá Íslandi.
Hér eru úrslit úr völdum flokkum:
Juvenile I
Elvar K. Gapunay og Sara Lind Guðnadóttir (DÍK) sigruðu þennan flokk bæði í standard og latin dönsum og heilluðu alla áhorfendur að sögn viðstaddra. Þau voru eina íslenska parið í þessum flokki.
Juvenile II Standard
Elvar K. Gapunay og Sara Lind Guðnadóttir (DÍK) kepptu flokk upp fyrir sig, en voru samt sem áður eina íslenska parið sem komst áfram upp úr 1. umferð í þessum flokki.
Junior Standard
Andri Fannar Pétursson og Helga Sigrún Hermannsdóttir (DÍH) hrepptu 2. sætið í þessum flokki. Guðlaugur Valsson og Malín Agla Kristjánsdóttir (DR) og Björn Dagur Björnsson og Dröfn Farestveit (DÍK) dönsuðu inn í undanúrslit.
Junior II Combi
Andri Fannar Pétursson og Helga Sigrún Hermannsdóttir (DÍH) enduðu í 3. sæti í þessum flokki, en í honum er bæði keppt í latin og standard dönsum. Alls hófu 43 pör keppni í þessum flokki.
Junior Combi
Andri Fannar Pétursson og Helga Sigrún Hermannsdóttir (DÍH) gerðu sér lítið fyrir og sigruðu þessa keppni. Berþór Kjartansson og Stella Karen Árnadóttir (DÍH), Birkir Örn Karlsson og Rakel Ýr Högnadóttir (DÍK), Guðlaugur Valsson og Malín Agla Kristjánsdóttir (DR) og Teitur Gissurarson og Aníta Hlín Guðnadótttir (DÍK) komust öll í fjórðungsúrslit (2. umferð).
Youth Standard
Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir (DÍH) komust lengst íslensku paranna í þessum flokki og dönsuðu undanúrslitin. En þau Björn Halldór Ýmisson og Hrefna Dís Sigurðardóttir (DÍH) og Freyþór Össurarson (DR) komust í 3. umferð. Sigmar Aron Viktorsson og Maren Jónasardóttir (DR) enduðu svo í 2. umferð.
Youth Latin
Sigrður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir (DÍH) enduðu í 3. sæti. Björn Halldór Ýmisson og Hrefna Dís Sigurðardóttir (DÍH) enduðu keppni í undanúrslitum, en Freyþór Össurarson og Eyrún Stefánsdóttir (DR) komust í fjórðungsúrslit. Kristófer Aron Garcia og Arna Rut Arnarsdóttir (DÍK) komust svo í 2. umferð.
Under 21’s Standard
67 pör hófu keppni og þar af 8 íslensk. Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir (DÍH) enduðu keppni í fjórðungsúrslitum. Magnús Arnar Kjartansson og Elísabet Halldórsdóttir (DFR), Freyþór Össurarson og Eyrún Stefánsdóttir (DR) og Sigmar Aron Ómarsson og Maren Jónasardóttir (DR) komust í 2. umferð. Önnur íslensk pör komust ekki áfram úr 1. umferð.
Under 21’s Latin
Af 64 pörum náðu Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Óladóttir (DÍH) 4. sætinu. Önnur íslensk pör í þessum aldursflokki kepptu frekar í Amateur 10 Dance.
Amateur 10 Dance
5 íslensk pör tóku þátt í þessum flokki, en bestu árangri íslensku paranna náðu þau Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir (DÍH) en þau náðu inn í undanúrslit. Jón Eyþór Gottskálksson og Denise Margrét Yaghi (DÍH) og Sigmar Aron Ómarsson og Maren Jónasardóttir (DR) dönsuðu sig inn í fjórðungsúrslit.
IDSF Amateur Latin
Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Óladóttir komust lengst Íslendinga í þessum flokki og höfnuðu í 16. sæti, en 88 pör voru skrá til keppni.
IDSF Amateur Standard
Jón Eyþór Gottskálksson og Denise Margrét Yaghi (DÍH) voru eina íslenska parið sem komst upp úr 1. umferð, en þau dönsuðu 2. umferð og enduðu í 44. sæti.
Það mætti halda að lífið hjá manni snerist um dans, hérna er ég sestur niður á sunnudagskvöldi eftir frábæra danskeppni í Laugardalshöllinni 30. og 31. janúar 2010. Ég hef fengið bæði jákvæða og neikvæða gagnrýni á pistlana en aðalatriðið finnst mér er að mér finnst þetta skemmtilegt og hef fengið feedback til baka sem þýðir að einhverjum finnst þetta gagnlegt.
Er að vinna í því að skrifa til mótanefndar með nokkur atriði varðandi keppnina. Fyrst er að nefna að dagskráin var send til félaganna um viku eða 10 dögum fyrir mót. Ég treysti mótanefndinni fyrir því að vinna vinnuna sína og er því ekki að setja mikið út á dagskránna. Einhverjar athugasemdir komu fram og var rennslið lagað til og sent aftur út rétt fyrir helgi. En samt var verið að gera breytingar á keppninni. Mér finnst að það eigi að halda sig við rennslið eins og það er sett upp og laga þá hluti sem eru ekki í lagi á næstu keppni ef mótanefnd ákveður það. Ef það er settur inn kynningardans eða þess háttar á rennslið þá er best að halda sig við það. Ef það eru 8 pör í úrslit á rennslinu þá á að halda sig við það.
Annars var rennslið vel sett að mér finnst og öll keppnin nokkuð vel framkvæmd. Mótanefnd og þá sérstaklega formaðurinn Jón Eiríks leggur sig alla fram við að allt gangi eins vel og hægt er.
Ég veit ekki hvað það voru nákvæmlega mörg pör skráð til keppni um helgina en nokkrir flokkar eru fjölmennir en svo eru nokkrir sem ég myndi vilja sjá fjölmennari. Hver er ástæðan fyrir því að Börn I flokkarnir eru ekki fjölmennari en þeir eru? Við ættum að vera að byggja upp dansara framtíðarinnar og þá tel ég að það sé betra að byrja snemma. Ættum við að skoða að setja aftur upp Börn 0 flokka sem eru þá fyrir 7 ára og yngri? Þá gætu yngri krakkarnir byrjað fyrr að keppa og væru þá sterkari og fleiri þegar þau fara upp í Börn I?
Langar eins og venjulega að fara yfir efstu flokkana og pörin í efstu sætunum og einnig önnur sem mér fannst eftirtektarverð. Verð mildur á þeim yngri en þau eldri eiga að geta tekið opinni gagnrýni.
Börn I K
Elvar og Sara eru yfirburðarpar á þeirra aldri og vonandi hafa þau löngun til þess að ná langt á erlendri grundu. Væri gott fyrir þau að fá meiri samkeppni.
Börn II K
Mér finnst þessi hópur ekki vera nógu sterkur. Ég sé möguleika í einum og einum en yfir heildina þá myndi ég vilja að hópurinn myndi eflast. Vonandi er metnaðurinn og markmiðasetningin í lagi hjá öllum.
Unglingar I F
Þetta eru vonarstjörnur okkar. Ef þessir krakkar halda svona áfram þá sé ég að við eigum 2-3 pör í úrslitum í Blackpool í Junior eftir 3 ár og vonandi í úrslitum heimsmeistaramóts í unglingum II árið 2013 og svo á toppnum í ungmennum árin þar á eftir. Pétur og Aníta virtust vera komin lengra en Davíð og Rakel og áttu frekar skilið að sigra fannst mér. Ef Davíð og Rakel gefa aðeins í þá eiga þau möguleika á að berjast við Pétur og Anítu eins og þau gerðu áður. Brynjar og Helga eru komin styttra og þurfa að vinna á grunnatriðum bæði í ballroom og latin.
Unglingar II F
Andri Fannar og Helga voru sigurvegarar í þessum flokki. Þau eru á góðri leið en vonandi slaka þau ekki á þó að þau hafi ekki næga samkeppni, sérstaklega í ballroominu. Oliver og Rebekka dönsuðu betur á Reykjavík Int´l svo þau áttu eiginlega aldrei sjéns að vinna núna. Myndi vilja sjá þessi pör setja sér hærri markmið og vinna betur og verða sterkari. Finnst þau ekki nógu sterk miðað við pör á þeirra aldri erlendis.
Ungmenni F
Þessi flokkur var dálítið öfugsnúinn. Alex vann latinið og Siggi vann ballroomið. Fyrirfram hefði ég giskað á öfugt. Stend ennþá við það að mér finnst Alex vera okkar besti ballroomdansari. Fannst Siggi og Sara pínulítið eins og þau eru venjulega, þ.e. þau eru alltaf stöðug en mér finnst þau vanta ferskleika. Spurning hvort þau ættu að fara aðeins í hugarfarið og reyna að finna sig upp á nýtt án þess að missa sjónir af sér sjálfum. Bjössi og Hrefna komu mér á óvart í ballroominu en voru pínu þreytt og ekki samtaka í latinu sem er eðlilegt miðað við að hafa bara dansað saman í um mánuð. Freyþór og Eyrún voru ekki eins krafmikil og oft áður. Þau hafa ekki fengið þau úrslit sem þau vilja upp á síðkastið en þá heldur maður bara áfram og vinnur í hlutunum.
Fullorðnir F
Finnst frábært hvað það eru margir í þessum flokki. Vona bara að það komi ekki sprengja í vor eins og gerist af og til og margir hætta. Siggi og Hanna unnu latinið örugglega og mér fannst þau eiga það skilið. Fannst Hanna ekki geisla eins og oft áður en samt yfirburðadansari. Siggi var ekkert smá kraftmikill en tók dansinn samt meira alvarlega en oft áður. Að sjálfsögðu er show mikilvægt í dansi en fyrir marga er dansinn mikilvægari. Mér fannst Siggi vera groundaðri en venjulega og sagði hann mér að hann hefði verið að vinna í þeim hlutum. Fannst ekki rétt hvað Jón Eyþór og Denise voru neðarlega í latininu, pörin fyrir ofan heilluðu mig ekki. Fannst mjög sanngjarnt að Jón Eyþór og Denise unnu ballroomið. Ég var pínulítið hræddur um að einhverjir af dómurunum fíluðu ekki showið hjá honum, þ.e. þegar hann setur of mikinn kraft í efri hlutann. Sama með Sigga og Söru hér, dálítið eins og þau geri þetta bara á autopilot en ekki af raunverulegri tilfinningu. Christopher og Ásta eru “skrýtið” par. Mjög góðir dansarar en eitthvað skrýtið. Ekki mikil útgeislun og ekki eins og þau hafi rosalega gaman af dansinum. Magnús og Elísabet eiga möguleika á því að fara nær toppnum og hafa þolinmæðina til þess. Vonandi vinna þau rétt úr hlutunum.
Ég vona að þau pör sem unnu sér rétt til þess að fara á heims og evrópumeistaramót nýti sér réttinn. Ég hlakka til að sjá hvar pörin okkar lenda í Copenhagen Open í febrúar og svo Junior Blackpool um páskana. Spennandi tímar framundan og margt að gerast.
Kveðja, Raggi
Seinni dagur Íslandsmeistaramótsins gekk vel, og voru dómarar og keppendur almennt sáttur með framkvæmd mótsins.
Úrslit frá deginum í dag eru fáanleg á vef Dansíþróttasambandsins, www.dsi.is, undir flipanum “Úrslit”.
Sigurvegarar helgarinnar áunnu sér rétt til þáttöku á heims- og evrópumeistaramótum á vegum IDSF á árinu 2010. Einnig áunnu sér 3 efstu pör í hverjum flokki fyrir sig sæti í afrekshópi DSÍ.
Frekar verður fjallað um mótið hér á Dansarinn.net á næstu dögum.
Úrslit frá fyrri degi Íslandsmeistaramótsins með frjálsri aðferð í Ballroom o Latin dönsum eru komin á vef Dansíþróttasambands Íslands, www.dsi.is.
Úrslit dagsins í dag munu svo birtast á vefnum um leið og mótinu líkur í dag, eða um 17 í dag.
Fyrsta keppni ársins að baki og enn meira spennandi keppni framundan um næstu helgi. Eins og venjulega langar mig að kommenta á pörin í efstu flokkunum og sitthvað fleira.
Ég hef rosalega góða tilfinningu fyrir vorönninni. Góð stemmning og góður fjöldi í flestum flokkum samkvæmt skráningu fyrir 5 og 5 dansa mótið núna 30. og 31. jan. Mig langar til þess að við eignumst danspör í úrslitum í stærstu keppnunum erlendis á næstu árum í junior, youth og amateur. Svo væri gaman ef við myndum eignast íslenskt professional par við tækifæri.
Yfirferðin frá Reykjavík Int´l er eftirfarandi:
Börn K
Elvar og Sara voru klárir sigurvegarar í þessum flokki og verður gaman að sjá þau í framtíðinni.
Unglingar I F
Pétur Fannar og Aníta koma vel út í frjálsu og vona ég að þau haldi áfram að vaxa og komist langt í 12-13 ára í Blackpool.
Unglingar II F
Oliver og Rebekka áttu skilið að sigra latinið. Greinilega sterkur leikur hjá þeim að einbeita sér að latininu.
Andri Fannar og Helga unnu ballroomið og var það engin spurning. Þótti gaman að sjá hvað Kristófer og Herborg eru orðin sjálfsörugg vinna vel saman.
Ungmenni F
Siggi og Sara eru svo langt á undan hinum youth pörunum að það er næstum því ósanngjarnt.
Fullorðnir F
Enn á ný eru Siggi og Sara fyrst í ballroominu. Þau hafa myndað mikinn stöðugleika sem hjálpar þeim. Ég myndi samt vilja að þau myndu finna sig pínulítið upp á nýtt til þess að koma þeim enn lengra. Kannski breyta röðunum aðeins og gera þær aðeins meira juicy.
Siggi og Hanna klárir sigurvegarar í latininu. Held áfram að vona að Siggi vinni meira á að verða groundaðri til þess að komast enn lengra.
Hlakka til næstu keppni. Sjáumst hress.
Kveðja, Raggi
Ásta Sigvaldadóttir og Przemek Lowiki kepptu í flokki atvinnumanna á heimsmeistaramóti WDC nú í vikunni, og enduðu þau í 10. – 11. sæti. Ásta og Przemek fengu 6 merkingar inn í úrslit.
Sigurvegarar voru Michal Malitowski og Joanna Leunis, en þau eru búin að vera ósigruð síðan Bryan Watson og Carmen hættu að keppa.
Ég er búinn að vera í dansi í 27 ár og samt hlakka ég ennþá til þegar kemur að danskeppni. Lotto keppnin er fyrsta keppni vetrarins og alltaf spennandi að sjá hverjir hafa unnið vel síðustu mánuði. Mörg pör fóru til London í október og því einnig gaman að sjá samanburðinn frá þeim keppnum. Sem betur fer voru nokkur pör að dansa betur núna en þá og kem ég betur að því seinna.
Ég hef mjög gaman að því að fara yfir hvernig mér finnst pörin dansa og eins og ég hef rætt áður þá er þetta mín skoðun og geta pörin valið að taka mark á minni skoðun eða ekki. Mín regla var sú að ef ég heyrði sömu gagnrýnina frá nokkrum aðilum þá fór ég að spá hvort eitthvað væri til í því.
Að venju langar mig að fara yfir efstu flokkana í hverjum aldursflokki og einblína á efstu pörin.
Börn I K
Mér finnst það frábær þróun að sjá fleiri en 1 par í Börn I K og sýnir það metnaðinn hjá þessum krökkum og aðstandendum þeirra. Vonandi heldur þessi þróun áfram og fleiri yngri pör keppi í K flokki.
Öll pörin í þessum flokki eru frambærileg og verður gaman að fylgjast með þeim. Merkingarnar eru nokkuð blandaðar og ætti það að vera hvatning fyrir pörin að gera enn betur á æfingum og á næstu keppnum.
Börn II K
Davíð og Rakel dönsuðu vel í þessari keppni og eins og ég hef sagt áður þá verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Höskuldur og Margrét eru einnig á góðri leið og náðu meira að segja nokkrum prikum af Davíð og Rakel.
Gísli og Þorbjörg er par sem ég hef ekki tekið eftir áður. Þau eiga nokkuð í land með að ná hinum pörunum í dansþroska en eru efnileg.
Reynir og Nhat Minh eru á uppleið, stóðu sig vel í London og ætla sér greinilega hluti í framtíðinni.
Eyþór og Mörtu hefur farið mikið fram en vantar ennþá upp á að ná pörunum fyrir framan þau.
Unglingar I F
Birkir og Rakel eru dæmi um par sem hefur unnið vel í sínum málum og ætla sér greinilega að reyna að halda forskotinu sem þau hafa náð. Það virðist samt sem hæðarmunurinn hafi truflað aðeins í ballroominu þar sem merkingarnar voru blandaðar.
Kristófer og Herborg náðu að stíga upp núna og héldu pörum fyrir aftan sig sem komu inn í F núna. Kannski munaði þar um að þau fóru til London en aðrir ekki.
Daníel og Perla eru sterk í latininu en þurfa að fá meiri tíma í ballroominu til þess að ná betri tækni og samvinnu.
Kristján og Kristín hafa reynslu úr F en fá nú meiri samkeppni en áður og þurfa því að leggja sig meira fram ef þau ætla ekki að missa hin pörin fram úr sér.
Unglingar II F
Valentín og Tinna unnu latinið nokkuð örugglega en lentu í öðru sæti í ballroominu og að ég held í fyrsta sinn sem þau tapa fyrir Sigmari og Mareni. Þau hljóta því að skoða sín mál og vinna á þeim hlutum sem þau þurfa að laga.
Sigmar og Maren eru á góðri siglingu, sérstaklega í ballroominu og verð ég að hrósa þeim fyrir mikla staðfestu og þrautseigju.
Oliver og Rebekka voru örugg í öðru sæti í latininu og áttu það fyllilega skilið.
Ungmenni og fullorðnir F
Alex og Jóna voru í raun sigurvegarar þessar keppni. Þau unnu 3 titla af 4.
Siggi og Sara voru góð en kannski voru Alex og Jóna ferskari.
Jón Eyþór og Denise dönsuðu töluvert betur núna en í London.
Christoper og Ásta. Verð að viðurkenna að ég veit lítið um þau sem danspar og voru þau ágæt. Sumt mjög gott en sumt bara ágætt.
Freyþór og Eyrún hafa sýnt að þau vilja ná langt og eru þau að festa sig í sessi sem eitt af topppörunum. Þau halda vonandi áfram að vinna í sínum málum og eiga þá möguleika að ná enn lengra.
Það er við hæfi að spá í hvort hugarfar paranna sé rétt. Á þessari keppni þá fannst mér það vera. Ég held að öll pörin hafi verið að dansa sitt besta eða nálægt sínu besta. það er gott mál. Svo er bara að vona að hugarfarið haldi áfram að vera gott og að öll pörin séu með markmiðin á hreinu og séu að stefna að þeim á réttan hátt.
Ég veit að milliriðlar hafa sína kosti og galla og ég held að flestir séu því sammála. Ég er samt farinn að hallast á að gallarnir séu fleiri en kostirnir. Núna eru keppnir á Íslandi orðnar fleiri en voru og því eru krakkarnir að öðlast keppnisreynslu og því kannski ekki eins nauðsynlegt að láta krakkana öðlast keppnisreynslu með milliriðlum. Ég upplifi milliriðlana stundum sem ágætis annað tækifæri fyrir pörin í neðri hlutanum en þá erum við í raun að segja að það þurfi kannski ekki að leggja sig alla fram í fyrstu umferð heldur fái allir annað tækifæri og þá er hægt að spara sig fyrir milliriðilinn. Ég væri alla vega til í að umræðan færi í gang hjá þeim aðilum sem halda keppnir. Þetta er líka stundum dálítið ruglingslegt fyrir yngstu pörin. Stundum vilja þau að númerið sitt sé lesið upp en stundum ekki. Svo fara þau til London eða Blackpool og þá eru engir milliriðlar.
Dómaramál eru alltaf umdeild. Sérstaklega þegar íslenskir dómarar dæma. Ég er reyndar á þeirri skoðun að ef það á að nota íslenska dómara þá held ég að það sé best að hvert félag skaffi einn dómara með réttindi. Hvert félag hefur þá valið hvort það notar íslenskan dómara eða jafnvel erlendan gestakennara með réttindi til þess að dæma. Þetta hefur verið gert á Reykjavik International. Að sjálfsögðu hefur hver mótshaldari rétt á að velja dómara eins og á Lotto keppninni.
Einhvern staðar las ég “hverjum þykir sinn fugl fagur”. Þetta á við í dansinum og fyrir þá sem hafa tíma til þess að skoða merkingar geta séð að oft eru 4 dómarar sem dæma eins og svo 1 sem dæmir öðruvísi og oft er það par frá því félagi þar sem dómarinn þjálfar. Þetta sá ég oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það er ekkert hægt að gera í þessu í raun en ef öll félög hafa 1 dómara þá er þetta alla vega jafnt yfir alla.
Með von um skemmtilegan dansvetur.
Kv. Raggi
Ásta Sigvaldadóttir og Przemek Lowiki sem keppa fyrir Pólland, höfnuðu í 7. sæti á alþjóðlegu stigamóti WDC í Hollandi.
Þetta var síðasta WDC stigamót ársins og eru Ásta og Przemek í 13. sæti á heimslista WDC fyrir árið í ár.
Eftirfarandi tilkynning birtist á vefsíðu Dansíþróttasambands Íslands í dag:
Staðfestar dagsetningar og keppnisstaðir fyrir Íslandsmeistarmót 2010 eru;
- 29. og 30. janúar 2010 Laugardalshöll, Rvk. 5 og 5 dansar
- 20. og 21. mars 2010 Smárinn, Kópavogi 10 dansar
- 1. og 2. maí 2010 Laugardalshöll, Rvk, grunnspor og línudansar
Laugardaginn 7. nóvember sl. var loksins komið að fyrstu danskeppninni á Íslandi á þessum vetri, þ.e. Lotto keppnin sem Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar heldur og var þetta 18. árið sem keppnin er. Óhætt er að segja að allir hafi beðið eftir þessari keppni með mikilli eftirvæntingu og tilhlökkun.
Það sem kom mest á óvart var allur þessi fjöldi af pörum sem eru komin í F flokka. Núna er ekki lengur dansað beint í úrslit heldur er komnir inn milliriðlar í alla flokka, sem gerir keppnina meira spennandi og pörin vita að þau þurfa að leggja meira á sig til að komast í úrslit.
Greinilegt var að þjálfarar allra aðildarfélaga DSÍ hafa lagt á sig mikla vinnu með félagsmönnum sínum í sumar til að koma pörum úr K flokkum í F flokka. Við hjá DSÍ fögnum þessari þróun og hlökkum mikið til Íslandsmeistaramótanna á næsta ári, því allir hópar verða stórir og samkeppnin mikil innbyrðis í hverjum hópi.
Enn hafa ekki allar heimsmeistarakeppnir verið haldnar fyrir árið 2009 og eiga nokkur pör enn eftir að fara á þá keppni sem þau unnu sér rétt til að fara á. Þau sem eru búin að fara hafa staðið sig með prýði og verið dansinum á Íslandi til sóma.
Afrekshópur DSÍ hefur staðið í ströngu frá því hann var fyrst kallaður saman í maí sl. og er sjöunda æfingin á dagskrá núna síðar í nóvember. Eftir keppnirnar árið 2010 verður nýr hópur valin og er nú þegar byrjað á að setja saman dagskrá fyrir þann hóp og verða því spennandi tímar fram undan fyrir næsta afrekshóp.
Að lokum vil ég minna á það sem er framundan í dansinum. Sunnudaginn 22. nóvember verður Dansráð Íslands með Íslandsmeistarakeppni í gömlu dönsunum, ásamt því að halda Freestyle keppi. Jólasýning Dansráðsins verður síðan sunnudaginn 29. nóvember. Í janúar 2010 er síðan Alþjóðlega RIG danskeppnin og Íslandsmeistaramótið í 5 og 5 dönsum verður helgina 30. og 31. janúar í Laugardalshöllinni.
Það eru því spennandi og bjartir tímar hjá dansíþróttafólkinu okkar.
Með danskveðju,
Jónas Dalberg
Formaður DSÍ
