Mér finnst alltaf gaman að sjá danskeppnir og ákvað því að skella mér á Copenhagen Open 2010. Þetta er keppni sem Íslendingar hafa farið á í mörg ár og oft með góðum árangri. Þetta árið var keppnin ekki mjög sterk í flestum flokkum. C.a. 4 pör skráð í juvenile I, 25 pör í juvenile II, 12 pör í junior I, 50 pör í junior, 50 pör í youth og 70 pör í amateur.
Ég er persónulega hrifnari af keppnum eins og Blackpool bæði junior og eldra og International í London. Að sjálfsögðu er margt gott við að fara á minni keppnir erlendis og það gerir pörum yfirleitt gott að lenda ofarlega í keppnum erlendis en stundum byrja pör að hugsa “jæja, ég náði góðum árangri í Köben og þá er þetta orðið gott og ég get slakað á æfingum”.
Ég vil frekar að pör stefni á stærri og sterkari keppnir og nái jafn góðum árangri þar en það er erfiðara og það þarf að hafa meira fyrir því. Að sjálfsögðu geta krakkar verið í dansi til gamans og hafa lægri markmið, það verða ekki allir heimsmeistarar en það væri gaman að sjá íslensk pör ofar í heiminum.
1. Sæti í junior á Copenhagen Open finnst mér svipað og 10. sæti í blackpool eða 6. sæti á international. 3. Sæti á Copenhagen Open í youth undir 19 er svipað og 15. sæti í Blackpool. Ég vona að pörunum sem gekk vel í Köben setji sér há markmið og verði dugleg að æfa og nái enn betri árangri.
Hápunktar keppninnar voru að mér finnst að sjá par í topp 3 í heiminum í amateur ballroom dansa á heimavelli. Emanuel og Tönju hefur gengið mjög vel síðustu ár og virðast eiga möguleika að ná enn lengra. Það sem mér finnst við Copenhagen Open er að þetta er hápunkturinn. Á International í október voru hápunktarnir að sjá 6 bestu pör í heiminum í amateur latin og ballroom og svo að sjá professional ballroom og latin finala. Kannski er ekki sanngjarnt að bera þessar tvær keppnir saman en ég geri það samt. Þeir sem hafa einungis farið til Köben finnst þessi keppni æðisleg og halda kannski að hlutirnir verði ekki betri.
Langar eins og venjulega að fara yfir hvert par fyrir sig og kannski aðeins dýpra í sum og mér finnst ekki sanngjarnt að fara yfir hluti hjá pörum sem ég fylgdist lítið með í þetta skipti.
Juvenile I
Elvar og Sara eru á mjög góðri leið. Frábært hjá Edda að láta þau keppa á þessari keppni og vonandi keppa þau í Blackpool um páskana en ef ekki þá að undirbúa þau vel til þess að keppa á næsta ári. Ég sé að það er farið vel í undirstöðuatriði hjá þeim og ég myndi vilja sjá þau þróast aðeins og verða þroskaðri í hreyfingum, sporum og tækni.
Juvenile II
Rúnar og Kristín eru líka á góðri leið. Kannski þyrfti meiri þjálfun og keyrslu á þau til þess að þau verði í hæsta klassa en efniviðurinn er til staðar.
Björgvin og Ólöf er frekar nýbyrjuð að dansa saman og komu vel út. Ólöf geislar og Björgvin er glæsilegur á gólfi.
Alen og Sigrún komu sterk inn þegar þau byrjuðu að dansa saman en hafa dalað aðeins. Vonandi finna þau neistann aftur og koma sterk til baka.
Junior I
Á þessari keppni vorum við ekki með par í þessum flokki. Þarna hefðu Pétur og Aníta og Davíð og Rakel getað keppt og tekið flokkinn í bakaríið.
Junior II
Þetta var keppnin Andra Fannars og Helgu. 2. Sæti í latin, 3. Sætið í ballroom og 1. Sætið í samanlögðu. Varla hægt að biðja um það betra. Persónlega hefði ég viljað sjá þau dansa betur og kraftmeira en þetta var nóg í þetta skiptið. Vonandi nýta þau sjálfstraustið úr þessari keppni og setja enn meiri kraft í æfingar og svo í Blackpool um páskana.
Gulli og Malín virðast ekki ætla að springa út. Þau komu gífurlega sterk inn þegar þau byrjuðu að dansa saman en svo hefur ekki mikið gerst. Er hugarfarið í lagi, eru þau nógu dugleg á æfingum og í tímum. Þetta þurfa þau og þjálfarar þeirra að fara yfir og vonandi þeirra vegna springa þau út fyrr en síðar. Mér finnst ekki nógu góð tenging til staðar hvorki í latin né ballroom, það er eins og þau séu að dansa í sitthvoru lagi.
Björn og Dröfn eflast með hverri keppninni. Flottir krakkar sem geta gert góða hluti. Dröfn þarf að vinna í fótatækni, hafa fæturna sterkari sem bætir þá t.d. jafnvægið. Björn þarf að átta sig á því að hann er flottur dansari og þarf að sannfæra dómara og áhorfendur að hann viti það. Þarf að vinna mest á efri hlutanum.
Birkir og Rakel voru ekki í stuði á þessari keppni og er ég ekki hissa þar sem þau eru hætt að dansa saman núna. Það er alltaf erfitt þegar hæðarmunur er mikill og þá spyr maður sig á að láta par halda áfram að dansa saman eða reyna eitthvað annað. Sagan segir að stundum verður að skipta en það hefur líka komið fyrir að pör hafa skipt og svo hefur minni aðilinn vaxið og þá efast maður um að það hafi verið rétt að skipta.
Önnur pör í þessum flokki stóðu ekki uppúr að mínu mati og því ósanngjarnt að kommenta á þau. Vonandi halda þau áfram að æfa vel og setja sér há markmið.
Youth og Amateur
Það var unun að horfa á Sigga og Hönnu í þessari keppni. Gleðin skein frá þeim báðum og léttleikinn og leikurinn alveg frábær. Talaði við Sigga og sagði hann mér að þau væru búin að vera að vinna í að nýta gólfið meira og verða þá þéttari í öllum hreyfingum. Ég hef tekið eftir því upp á síðkastið og sagði honum að næsta skref ætti að vera að nýta tónlistina enn betur og þá verða þau enn dýpri í hreyfingum og enn sneggri. Mér finnst hann minna mig danslega á Brian Watson sem ætti ekki að vera svo slæmt. Þau þurfa að halda áfram að vinna vel og ef þau sýna þolinmæði þá ættu þau að ná mjög mjög langt.
Jón Eyþór og Denise dönsuðu misvel á þessari keppni. Latinið ekki eins gott og fyrir 2 vikum og ballroom ekki gott til að byrja með en batnaði svo helling. Fannst hægri hliðin á Jóni vera þung og ef þetta heldur áfram þá þarf Denise kannski að rétta sig aðeins af. Það gerist stundum hjá dömum að þær gleyma því að ef staðan þeirra er ekki eins og hún á að vera þá bitnar það á stöðu herrans og á dansinum þeirra beggja. Stundum þurfa dömurnar bara að rétta sig af um 2-3 cm og þá eru hlutirnir í lagi. Annars fannst mér Jón Eyþór virkilega vilja gera hlutina almennilega núna og vonandi heldur hann áfram að hugsa þannig en samt með kraftinn sem gerir hann að honum sjálfum.
Siggi og Sara náðu góðum árangri. 3. Sæti í latin. Ég hefði samt viljað sjá þau dansa betur. Ballroomið var betra en latinið og eru þau á góðri leið. Næst myndi ég vilja sjá þau fara enn lengra, búa til stærri línur og verða sneggri í tangoinum og léttari í quicksteppinu. Kannski þurfa þá að láta skoða hjá sér kóreógrafíuna í tangonum.
Magnús og Elísabet voru örugglega ekki mjög ánægð með helgina. Þau setja sér há markmið og vilja ná langt. Kannski þurfa þau að fara yfir afhverju þau eru ekki að ná eins langt og þau vilja núna. Hef spjallað við Magnús og honum liggur ekkert á og veit að hann mun taka fram úr þegar fram líða stundir. En það væri skemmtilegra ef það gæti komið fyrr en síðar. Ég myndi vilja sjá hann skoða dansstöðuna og loturnar. Elísabet þarf að verða sterkari. Hún þarf að fá tækifæri til þess að dansa betur til Magnúsar og gera meira fyrir hann. Hún hefur alla burði til þess að vera frábær dansari, bæði danslega og andlega. Þó hún sé frænka mín þá man ég ekki eftir dansara með eins gott hugarfar og hún er með. Magnús mætti dansa örlítið neðar og passa að spenna ekki efri hluta líkamans.
Jónsi og Elísabet voru í æfingabúðum í Silkeborg í vikunni á undan Köben. Fóru þar í tíma hjá t.d. Alan og Vibeke og Bo. Þau hafa því nóg að hugsa um þegar þau mæta á æfingar í vikunni og um næstu helgi. Jónsi þarf að ætla sér að verða betri og gera meira í því. Elísabet þarf að vinna í hugarfarinu hjá sér til þess að gera hlutina auðveldari fyrir sig og Jónsa. Þau mættu byrja á því að æfa meira og betur og þá kannski ganga hlutirnir betur.
Gummi og Jóna sýndu ekki sitt besta frekar en fyrri daginn. Stundum vildi ég óska að dansinn væri eins og í skóla þ.e. að lokaeinkunnin er byggð á verkefnavinnu, ástundun og prófum yfir veturinn en ekki bara á keppnunum c”) Þá myndu þau fá betri einkunn. Þeim tekst ekki að gera úmf út á gólfi og gefa eftir í efri hlutanum og nota ekki fæturna eins og þau geta. Þau eru hæsta ballroom par sem við eigum og ættu því að taka minni pör í nefið en enda oft að ferðast minna en pör sem eru töluvert minni en þau.
Ármann og Erna hafa tekið sig mikið á í ballroominu og mér heyrðist jafnvel að þeim væri farið að finnast það ágætt. Þeim finnst nefnilega miklu skemmtilegra að dansa latin. Ég sagði við Ernu að markmiðið hjá mér væri að gera hana að betri ballroom dömu en latin. Það er ekki komið en eins og ég hef margoft sagt þá á maður að setja sér markmið og stefna að þeim. Þau eru að ná aðeins meiri stöðugleika í ballroominu en ennþá er næg vinna eftir. Til þess að ná lengra í latininu þá þurfa þau að ná betri tengingu við hvort annað og líka við áhorfendur og dómara. Það er með þau eins og marga aðra að þau þurfa að átta sig á hvað þau geta og sannfæra svo áhorfendur og dómara um það. Þau þurfa líka að stefna að meiri stöðugleika í latininu en samt að nýta kraftinn sem þau hafa.
Logi og Björg (Bjölla) eru öll að koma til. Logi er toppnáungi sem langar að verða betri dansari. Hann þarf að halda áfram að vinna í líkamstöðunni og fá dýpt og snerpu í fæturna. Björg þarf að læra að tjá sig meira í dansinum verða fjölbreyttari. Ég er ekki að segja að hárgreiðsla og dansföt séu aðalatriðin í dansinum en þau skipta máli, ekki fyrir dómara en fyrir áhorfendur og krakkana sjálfa. Það fer rosalega mikill tími í æfingar og tíma og því ekki að gera sig fína eða fínann þegar maður sýnir afraksturinn.
Sigmar og Maren hefur gengið mjög vel og eru greinilega að vinna vel á æfingum og í tímum. Þau voru að dansa svipað og í janúar en hefðu mátt sýna meira sjálfsöryggi en það er oft erfitt þegar maður er að dansa á móti pörum sem eru eldri og reyndari.
Freyþór og Eyrún (Freyrún) áttu gott mót. Komust oft lengra eða jafnlangt og pör sem þau hafa tapað fyrir upp á síðkastið. Vinstri hendin á Freyþóri hefur angrað mig og hann í langan tíma og sá ég að hún var enn til staðar fyrri hluta keppninnar en svo tók ég eftir að hún var ekki til staðar seinni hluta keppninnar og þá var allt annað að sjá stöðuna hans. Það var meiri kraftur í latininu en ég hef séð áður.
Björn og Hrefna eru nýlegt par og koma nokkuð vel út. Bjössi hefur sýnt að hann langar að ná langt í dansinum og vonandi kemur það með Hrefnu. Var hrifnari af latininu hans áður en núna er ballroomið sterkara. Verður gaman að fylgjast með þeim.
Í dansi þá skipta margir hlutir máli. Allt frá réttum fótaburði og upp í flotta og stóra dansstöðu í ballroominu og tjáningu í latininu. Mér finnst allt í lagi að láta fylgja með tvo hluti sem mér finnst skipta máli og eru þetta engin geimvísindi heldur almenn skynsemi.
Samvinna, samtaka. Við verðum að hlusta á hvort annað og vinna með hvort öðru og þá gildir það bæði á æfingum og í keppni. Ef við vinnum saman þá verða hlutirnir auðveldari. Ef við erum samtaka þá þarf oft lítið að segja til þess að hlutirnir verði betri. Oft þarf þá bara að segja hlutinn við annan aðilann og hinn hlustar þá á og gerir sama hlutinn. Ef við erum ekki samtaka þá þarf oft að segja sitthvorn hlutinn við aðilana og þá fer tvöfalt meiri tími og orka í það.
Orkan sem fer í dansinn er gífurleg. Þegar við áttum okkur á því að við erum sjálf orkuforðabúr fyrir hvort annað þá fara hlutirnir að gerast. Horfið í augun á hvort öðru í latininu og finnið fyrir hvort öðru í ballroominu. Finnið orkuna sem þið gefið og fáið margfalt til baka. Hugsið svo þegar þið eruð ósátt eða löt hvað allt er erfiðara og leiðinlegra.
Enn á ný vona ég að einhverjir hafi af þessu gagn og gaman en reyndar er aðalatriðið að mér finnst þetta gaman og mun ég halda þessu áfram á meðan svo er.
Sjáumst svo eldhress í Smáranum í mars og svo eiturhress í Blackpool um páskana.
Með danskveðju, Raggi
Fyrsta keppni ársins að baki og enn meira spennandi keppni framundan um næstu helgi. Eins og venjulega langar mig að kommenta á pörin í efstu flokkunum og sitthvað fleira.
Ég hef rosalega góða tilfinningu fyrir vorönninni. Góð stemmning og góður fjöldi í flestum flokkum samkvæmt skráningu fyrir 5 og 5 dansa mótið núna 30. og 31. jan. Mig langar til þess að við eignumst danspör í úrslitum í stærstu keppnunum erlendis á næstu árum í junior, youth og amateur. Svo væri gaman ef við myndum eignast íslenskt professional par við tækifæri.
Yfirferðin frá Reykjavík Int´l er eftirfarandi:
Börn K
Elvar og Sara voru klárir sigurvegarar í þessum flokki og verður gaman að sjá þau í framtíðinni.
Unglingar I F
Pétur Fannar og Aníta koma vel út í frjálsu og vona ég að þau haldi áfram að vaxa og komist langt í 12-13 ára í Blackpool.
Unglingar II F
Oliver og Rebekka áttu skilið að sigra latinið. Greinilega sterkur leikur hjá þeim að einbeita sér að latininu.
Andri Fannar og Helga unnu ballroomið og var það engin spurning. Þótti gaman að sjá hvað Kristófer og Herborg eru orðin sjálfsörugg vinna vel saman.
Ungmenni F
Siggi og Sara eru svo langt á undan hinum youth pörunum að það er næstum því ósanngjarnt.
Fullorðnir F
Enn á ný eru Siggi og Sara fyrst í ballroominu. Þau hafa myndað mikinn stöðugleika sem hjálpar þeim. Ég myndi samt vilja að þau myndu finna sig pínulítið upp á nýtt til þess að koma þeim enn lengra. Kannski breyta röðunum aðeins og gera þær aðeins meira juicy.
Siggi og Hanna klárir sigurvegarar í latininu. Held áfram að vona að Siggi vinni meira á að verða groundaðri til þess að komast enn lengra.
Hlakka til næstu keppni. Sjáumst hress.
Kveðja, Raggi
Það er svo margt sem mig langar að setja niður á blað eftir þessa frábæru ferð. Mig langar að ræða um keppnirnar sjálfar, danskrakkana og svo um bestu dansara í heiminum.
Fyrir þá sem ekki vita þá erum við að tala um keppnirnar sem eru í byrjun október á hverju ári í London, Englandi. Fyrstu tvær keppnirnar eru All England og London Open og eru þær haldnar í Watford sem er í norður hluta London. Þriðja keppnin er haldin í Frimley sem er rétt suð vestan við London uþb klukkutíma frá Watford til þess að hafa viðmið. Reyndar hefur bæst við keppni í Frimley sem er sama dag og London Open sem þýðir að krakkar 12 ára og eldri þurfa að velja aðra hvora en ekki er keppt í juvenile 11 ára og yngri í Frimley. Svo er aðalkeppnin í Brentwood sem er austan við London. Þannig að þó við séum að tala um keppnir í London þá er London svo stórt svæði að þetta er smá ferðalag á milli keppna.
All England var haldin föstudaginn 9. október og er minnsta keppnin. Haldin í Collosseum í Watford. Ágætis hús til þess að halda litla keppni og gólfið nokkuð stórt en styttra og kassalagaðra heldur en gólfið í Laugardalshöllinni. Mér fannst þetta vera góð keppni sem undirbúningur undir hinar keppnirnar. Ágætis stemmning en aðallega hugsað sem góð æfing. Mér fannst flestir íslensku krakkanna vera að dansa undir getu á þessari keppni og sem betur fer fyrir þau áttu þau flest eftir að bæta sig eftir því sem leið á ferðina.
London Open var haldin laugardaginn 10. október og er aðeins stærri en All England. Fjölda í hverri keppni og úrslit er yfirleitt hægt að sjá inn á www.dancesportinfo.net. London Open er haldin í sama húsi og All England. Með fleira fólk í húsinu og fleiri keppendur þá myndaðist meiri stemmning. Ekki var setið við borð heldur var stólum raðað meðfram gólfinu sem myndar aðra stemmningu og er skemmtilegra þegar þétt er setið.
Imperial var sunnudaginn 11. október í Frimley og var gríðargóð stemmning í húsinu. Gólfið í Frimley er minna og eins konar gryfja. Gólfið er mishált eins og sást því topppör þurftu að passa sig því það er stundum mjög sleipt og stundum stamt.
International Championship var svo haldin í Brentwood þriðjudaginn 13. október og miðvikudaginn 14. október. Úrslitakeppnin þar sem c.a. 50 bestu pörin í amateur latin og ballroom og professional latin og ballroom keppa er í Royal Albert Hall í mið London. Brentwood er fínn staður fyrir keppni. Pallar meðfram gólfinu og ágætis stemmning. Gólfið stórt og þægilegt að komast um. Albert Hall er þekkt hús og fara þar fram stórir atburðir á borð við alvöru óperuuppsetningar, risatónleikar og þess háttar. Ég mæli ekki með því að sitja upp í circle því þar er bratt setið og langt í burtu. Ég ætla alla vega að panta miða í Albert Hall fyrir næsta ár með góðum fyrirvara til þess að fá gott sæti. En dansinn í Albert Hall var frábær. Flest bestu pörin í heiminum voru að keppa og þó það sé nokkuð langt síðan ég fór á keppni erlendis fyrir eldri keppendur þá vissi ég nokkurn vegin hver var hvað og myndaðist umræða hver okkur fannst ætti að vinna hvern flokk. Í sumum flokkum eins og Professional ballroom og professional latin var auðvelt að sjá hver myndi vinna en svo aðeins erfiðara í amateur ballroom og latin. Snerpan, nákvæmnin, samvinnan og krafturinn sem þessi pör eru búin að æfa upp er magnað að sjá og það þó við sætum upp í circle. Alltaf gaman að fá smá bónus og sjá íslending í undanúrslitum í professional latin. Ásta Sigvalda og Przemek voru þar og heyrði ég frá Ástu að hún væri mjög ánægð með árangurinn. Þetta er að ég best veit besti árangur sem íslenskur dansari hefur náð í flokki atvinnumanna frá upphafi.
Hvernig mér fannst íslensku krakkarnir standa sig
Juvenile – 11 ára og yngri – afmælisdagur telur í Englandi
Pétur og Aníta stóðu sig mjög vel í ferðinni. Dönsuðu reyndar undir getu í All England en bættu sig svo eins og flestir. Þessir krakkar eru að þroskast gríðarlega danslega og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni. Ég myndi vilja sjá þau gera erfiðari spor í ballroominu en reyndar er farið að síga á seinnihlutann á juvenile ferli þeirra og því fara þau fljótlega að færa sig upp í frjáls spor sem verða þá meira krefjandi. Ég tók eftir því hvað fæturnir á Anítu hafa styrkst í latininu og er hún greinilega búin að vinna vel á þeim og var að skila einum bestu juvenile fótum sem ég hef séð í langan tíma.
Davíð og Rakel stóðu sig líka vel. Rakel er geislandi dansari og með mjög sterka og góða fætur. Tjáningin hjá henni virðist líka koma frá henni sjálfri en stundum sést að juvenile krakkar eru að búa til tjáningu. Ég myndi vilja sjá Davíð sterkari bæði í latin og ballroom. Höfuðstaðan fannst mér ekki nógu góð, of framarlega en annars mjög flottur dansari.
Höskuldur og Margrét eru á góðri leið með að sanna sig með hinum tveimur en ég myndi vilja sjá og heyra að þau ætluðu sér að komast fram úr hinum tveimur pörunum. Ég myndi vilja sjá að metnaður þeirra væri meiri en að vera fyrir aftan hin tvö því þau virðast hafa alla möguleika til þess. Þau hafa geislað meira en á þessum keppnum og finnst mér Höskuldur hafa gefið aðeins eftir en Margrét gefið í. Vonandi setja þau sér há markmið og stefna að þeim á réttan hátt bæði andlega og líkamlega.
Reynir og Nhat Minh voru að keppa erlendis í fyrsta skipti saman. Nhat Minh hefur bætt sig mikið í sumar og er greinlega mikið efni þar á ferðinni. Reynir hefur einnig bætt sig mikið og verður gaman að sjá hvert þau ætla sér í framtíðinni.
Guðmundur og Birgitta voru að keppa í fyrsta skipti erlendis. Þau stóðu sig með prýði og skiluðu sínu. Þau eru ekki að keppa í efsta flokki á Íslandi en sýndu að með mikilli vinnu og réttu hugarfari þá er hægt að vinna sig upp og ef þau halda svona áfram þá sé ég þau keppa í efsta flokki á Íslandi í náinni framtíð.
Junior – 12-15 ára – afmælisdagur telur í Englandi
Þorkell og Hrefna Dís. Hvað á ég að segja? Par sem er byrjað að keppa í ungmennum heima og komast styttra en pör sem keppa í unglingar II heima. Dansinn þeirra virtist óöruggur og hugarfarið eitthvað skrýtið. Þetta eru flottir krakkar sem hafa möguleika á að ná árangri en eins og ég sagði þá virtist hugarfarið ekki vera í lagi. Kannski voru þau veik eða eitthvað annað að angra þau. Þetta hljómar kannski harkalega.
Valentin og Tinna sýndu að þau langaði til þess að ná langt. Sérstaklega Tinna. Hún gaf allt sitt í dansinn en stundum finnst mér Valentin vera pínu lokaður. Hann þarf að þroskast og vera tilbúinn að gefa sig alveg í dansinn. Valentín þarf líka að taka ákvörðun með hægri hliðina á sér í ballroominu, hún er lin og mýkist um leið og hann fer af stað. Ég myndi líka vilja sjá meira swing og shape hjá honum og held ég að það sé hluti af því að hann þarf að þora að gera hlutina.
Andri Fannar og Helga voru að gera góða hluti í ferðinni. Helga flottur dansari sem gefur sig alla. Andri Fannar sýndi meira sjálfstraust núna en oft áður og skilaði það sér í betri dansi.
Daníel og Perla eru á góðri leið og stóðu sig með prýði.
Kristófer Haukur og Herborg sýndu ágæta takta og hafa greinilega áhuga á að bæta sig.
Jón Eyþór og Denise……..Jón Eyþór eru fæddur töffari og er skemmtilegur strákur. En það er ekki nóg til þess að ná árangri í dansinum. Dans er vinna og meiri vinna og svo aðeins meiri vinna. Ég þekki ekki æfingaplanið hjá Jóni og Denise en miðað við dansinn þá myndi ég segja að þau væru ekki að æfa nóg eða rétt. Latinið virkaði lint og óspennandi og þegar þau reyndu að búa til kraft eða snerpu þá sást að þau voru bara að reyna. Ballroomið var örlítið betra en höfuðstaðan á Jóni orsakar að hann fær ekki mikinn sjéns að komast áfram. Það eru margir dómarar sem horfa á höfuðstöðu og haldið á herranum og ef það er ekki í lagi þá er bara horft á næsta par. Ég myndi líka vilja fá meiri kraft úr fótunum á Denise og kannski er Jón að reyna að búa til kraft og gleymir þá að hugsa um sjálfan sig. Svo hef ég minnst á við Jón að það verður að vera meiri tilfinning í ballroominu, gefa Denise meira pláss og fylla betur upp í tónlistina.
Alex og Jóna eru ekki búin að dansa saman í langan tíma og því gott hvað dansinn er kominn langt hjá þeim. Alex hlýtur samt að vera svekktur með að komast ekki lengra því hann var kominn mjög langt með Katrine Nissen og hefði pottþétt náð lengra í þessari keppni með henni. Jóna er komin styttra og þarf að styrkja sig og bæta til þess að ná Alex til þess að þau geti náð þeim árangri sem Alex á skilið. Ég myndi reyndar ef ég væri Alex sleppa latininu nánast alveg og einbeita mér að ballroominu. Ég held að Alex gæti orðið besti ballroom dansari sem íslendingar hafa átt.
Arnar og Bryndís hafa dansað saman í nokkra mánuði og eru stutt komin miðað við pörin sem voru að keppa á keppnunum í London. Þau eru efnileg og geta komist lengra ef þau setja sér þau markmið. Þau þurfa að dansa sig meira saman og vinna á tæknihlutum eins og snerpu, klára línur, krafti og þess háttar. Arnar þarf einnig að einbeita sér að því að vera uppréttur sem getur stundum verið erfitt þegar maður er hávaxinn.
Logi og Björg hafa líka bara dansað saman í nokkra mánuði. Þau passa mjög vel saman. Björg er elegant dansari sem dregur Loga inn í þann pakka líka. Þau bættu sig með hverri keppni og hefur áhuginn vaxið mikið og hef ég heyrt þau tala um 5 ára plan sem fleiri mættu gera í dansinum. Þau þurfa líka að dansa sig betur saman og halda áfram að æfa og æfa. Æfingar og tíma ættu að fara í að bæta snerpu og kraft og þess háttar.
Aðalsteinn og Kristrún eru skemmtilegt par. Alli er 198 cm og Kristrún 160 cm. Hæðarmunurinn er mikill og því verður að reyna að vinna hann niður. Alli þarf að halda sér uppréttum og Kristrún að dansa upp til hans. Alli hefur náð miklum framförum en vantar enn mikið upp á til þess að komast þangað sem hann langar til. Krisrún er kraftmikill dansari og þarf að vinna í kvenleika og fáguðum hreyfingum með kraftinum.
Ármann og Erna stóðu sig að mestu leyti með prýði. Ármann hefur lært dans í rúmt ár og því ótrúlega gott að hann skuli vera að keppa í London með frjálsar lotur og standa sig vel. Ármann þarf að halda áfram að bæta tæknina hjá sér og skilninginn á tækninni eins og handahreyfingum, vinnu í fótunum og stjórnun. Erna er flottur dansari og er með góða fætur. Hún þarf að bæta hjá sér tjáningu og handahreyfingar. Allar handahreyfingar þurfa að vera handahreyfingar en ekki bara hendur sem hreyfast.
Mathieu og Íris eru búin að dansa saman í nokkra mánuði. Íris hafði keppt áður í frjálsu en Mathieu bara einu sinni áður. Þau hafa náð mjög vel saman á þessum stutta tíma. Þau þurfa bæði að opna sig meira gagnvart hvort öðru og einnig áhorfendum og dómurum. Vonandi kemur það með meira sjálfstrausti.
Bestu pörin í heiminum
Að fá tækifæri til þess að sjá bestu pörin í heiminum dansa var frábært tækifæri bæði fyrir mig og líka fyrir krakkana. Arunas og Katusha sem unnu professional ballroom svifu um gólfið og sýndu líka að þau geta gert tangoinn kraftmikinn þó að þau séu í stærra lagi miðað við hin pörin. Michel og Joanne sýndu að þau eru yfirburða par í professional latin með þvílíkri nákvæmni og samvinnu. Ég horfði nánast bara á þau í úrslitum og ég sá þau ekki fipast einu sinni. Andrea og Sara eru frá Ítalíu og eru nýir Int´l amateur ballroom meistarar því fyrrum meistarar eru komnir í professional og lentu þar í 5. Sæti. Alexei og Anna frá Rússlandi áttu í harðri keppni við par frá Sloveníu í amateur latin en unnu að lokum.
Þetta hafa verið uppundir 2000 dansarar sem kepptu á þessum keppnum frá yfir 60 löndum. Sannarlega alþjóðleg keppni International Championship.
Ég er strax búinn að ákveða að ég ætla á næsta ári……hverjir ætla með?
Kveðja, Ragnar danskennari
Jæja þá er kominn september og allt að fara á fullt í dansskólum og dansfélögum landsins. Ég hlakka mikið til að sjá hvað keppniskrakkar hafa verið að gera í vetur og reikna með að sjá hluta af þeim í London í október þar sem 7 pör frá Dansfélaginu Ragnari og örugglega fleiri frá öðrum félögum eru að fara á International Championships sem er eitt af 3 stóru keppnunum í Englandi. Þau pör sem fara ekki til London eru að undirbúa sig fyrir Lotto Open sem verður 7. nóvember.
Einn liður í undirbúningi keppnispara eru svonefndar opnar æfingar sem undirritaður fór af stað með í byrjun þessa árs og hafa hin félögin tekið vel undir og hafa félögin fylgt í kjölfarið. Vonandi getum við haldið þessum opnu æfingum áfram og er þá aðalatriðið til þess að halda andanum góðum að allir eru velkomnir alls staðar. Mig minnir að röðin sé eftirfarandi: 1. DansfélagiðRagnar 2. ÍR 3. DÍK 4. Dansfélag Reykjavíkur. Hvönn er búið að bjóða til æfingar sunnudaginn 20. sept og þá er DÍH eina félagið eftir af þeim sem hafa sýnt áhuga á að vera með á opnum æfingum. Svo byrjum við hringinn aftur nema önnur félög sýni áhuga á að vera með.
Eitt sem ég hef verið að hugsa um og það er hvort keppnispör á Íslandi eru með nógu skýr markmið. Eru pörin að setjast niður með þjálfurum eða danskennurum og ræða hvaða möguleika þau hafa á að setja sér markmið og hvaða leiðir eru til þess að ná þeim? Ég vona það að sjálfsögðu en oft finnst mér hugarfarið vera þannig að það er æft og æft og svo bara kemur í ljós hvernig gengur. Er verið að æfa á réttan hátt? Ef markmið eru sett og þau nást ekki þá þarf að skoða afhverju og ég efast stórlega að það sé gert í mörgum tilfellum.
Ég ætla að hafa þetta stutt og laggott núna en ætla að reyna að koma með góðan pistil eftir frábæra ferð til London í október.
Kveðja, Raggi
Að sjálfsögðu þurfum við að hafa reglur til þess að fara eftir því annars verður dansinn bara rugl og vitleysa því við viljum alltaf fara lengra og lengra. En reglur eru til þess að hjálpa okkur að gera dansinn eins og við viljum hafa hann. Við þurfum að nýta reglurnar sem við höfum á réttan hátt. Hvernig er hægt að réttlæta að juvenile skyrtur eigi að vera með hnöppum og megi ekki hafa nærbuxur fastar við. Hvaða áhrif hefur það á dansinn hvort skyrtur eru með hnöppum eða rennilás. Hvaða máli skiptir það? Hjálpar það strákunum í dansinum ef nærbuxur eru fastar við skyrturnar? Verða þeir betri við það? Það eina sem ég sé er að við verðum með fullt af strákum úti á gólfi með skyrturnar upp úr buxunum.
Reyndar finnst mér klæðaeftirlit og sporaeftirlit á keppnum hjá okkur vera hálfgert grín. Báðir aðilar eru starfandi þjálfarar. Hvernig er hægt að ætlast til þess að báðir aðilar geri athugasemdir við pör sem þessir aðilar eru að kenna eða þjálfa? Það væri gaman að athuga hvort þessir aðilar hafi nokkurn tíman gert athugasemdir við eða kært sín pör.
Ég er með nokkar hugmyndir til þess að gera eftirlit með reglum eðlilegra. Til dæmis að fá óháðan aðila sem er ekki með pör í keppnum til þess að sjá bæði um klæða og sporaeftirlit. Þetta þyrfti þá að vera aðili sem væri tilbúinn að taka þetta að sér af alvöru. Svo þyrftum við að vera með einhvers konar kerfi á kvörtunum og kærum. Í dag er þetta bara hips og haps. Pör og félög þurfa að fá aðvaranir áður en þeim er til dæmis vikið úr keppni eða refsað með því að setja það í síðasta sæti í þeim dansi sem þau dansa eitthvað spor eða hreyfingu sem er ekki leyfð. Mér finnst það hættulægt fordæmi sem var gefið á laugardaginn þegar pari var veitt síðasta sætið í dansi sem þau gerðu óleyfilega hreyfingu. Hvað verður um næsta par sem verður kært? Munu einhverjir hugsa með sér að ef pörin fyrir ofan eru kærð og eitthvað kemur í ljós þá komast þau ofar í röðinni? Verður kært fyrir hluti sem hafa verið leyfðir í mörg ár?
Jæja nóg um þessa hluti. Mér fannst rosalega gaman að sjá sum pörin og suma hópana um helgina. Ég ætla að fara í gegnum suma hópana og minnast á þá hluti sem mér fannst athyglisverðastir.
Unglingar I K – nokkur pör hérna sem eru á góðri siglingu og eiga framtíðina fyrir sér í dansinum. Verður gaman að sjá þau leggja enn meira á sig og byrja að keppa í F í haust.
Unglingar II K – Efstu 3 pörin eru í raun F pör þar sem þau hafa flest ef ekki öll byrjað að æfa F. Þau verða góð viðbót við F flokkana í haust.
Ungmenni K – Var gaman að sjá ferskt blóð í þessum flokki með pari frá Akureyri. Veit ekkert um þetta par en vona að þau geti orðið vítamínsprauta fyrir dansinn á Akureyri. Hérna eru líka pör sem byrja að æfa frjálsar lotur í sumar.
Unglingar II F – Valentín og Tinna á góðri siglingu. Alltaf gott að lenda ekki í fyrsta sæti af og til og koma svo til baka tvíefld. Til hamingju Sigmar og Maren með annað sætið í ballroominu.
Ungmenni F – Siggi og Sara enn á ný öruggir sigurvegarar. Gaman að sjá hvað Freyþór og Eyrún eru á góðri siglingu.
Fullorðnir F – Siggi Þór og Hanna virðast vera búin að festa sig í sessi sem sigurvegarar. Væri gaman að vita hvaða langtímamarkmið þau hafa sett sér. Til þess að ná alvöru árangri í dansi þá þarf að hafa þolinmæði og þrautseigju. Jón Eyþór og Denise góð í latininu en dálítið stíf í ballroominu. Hef talað um þetta við Jón Eyþór og er hann örugglega að vinna í þessu. Væri gaman að vita hvað Aðalsteini og Rakeli finnst um að lenda aftur í 3. sæti. Ég vona þeirra vegna að markmiðin þeirra séu að lenda ofar.
Ég er byrjaður að undirbúa prógrammið fyrir sumarið hjá mínum krökkum og er mikill hugur í sumum. Ég vona að aðrir hafi líka hugsað sér að nota sumarið í stífar æfingar til þess að ná forskoti á keppinautana eða ná forskotinu sem keppinautarnir hafa á þá. Styrktaræfingar, tækniæfingar og gestakennarar munu einkenna sumarið.
Ég er strax farinn að hlakka til haustsins og sjá hvernig krakkarnir hafa notað sumarið. Vona að við verðum með nokkur pör á International í október. Verið nú dugleg í sumar og munið að þið uppskerið eins og þið sáið.
Kv. Raggi
Ég var ánægður með helling af hlutum eins og góða þáttöku, lýsing og umgjörð, góðan anda og tónlistin var ágæt. Helst langar mig að gagnrýna ósamræmi í rennslinu, þ.e. það virðist ekki alltaf vera á hreinu hvort flokkar dansi kynningardans, kynningarumferð eða alls ekki. Mig langar til þess að mótanefnd DSÍ setji upp einhverja beinagrind af rennsli þannig að dansskólar, dansfélög, keppendur og foreldrar geti nokkurn vegin gengið að því vísu á hvaða degi hvaða flokkar eru og einnig hvort greinin er á hvorum degi. Það er stundum eins og það sé verið að finna upp hjólið í hvert skipti sem haldin er keppni.
Nokkar athugasemdir varðandi efstu keppnisflokkana í hverjum aldursflokki:
Börn II K
Þó að það séu ekki allir sammála þá er gaman fyrir dansinn að það sé ekki sama parið sem vinnur. Pétur og Aníta greinilega á siglingu á meðan Davíð og Rakel hafa gefið aðeins eftir. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvar þessi pör geta verið í junior Blackpool eftir c.a. mánuð en íslenska dansins vegna þá vona ég að þau verði bæði í úrslitum.
Unglingar I F
Ég viðurkenni að ég bíð eftir því að það fjölgi í þessum flokki. Það voru um 10 pör í unglingum I K og vona ég að mörg eða flest þessara para hafi metnað til þess að fara í F eftir mótið í maí. Sigurvegararnir að mínu mati öruggir en ef pörin í unglingum I K gefa aðeins í þá verður þetta spennandi flokkur næsta vetur.
Unglingar II F
Sömu 2 pörin sem keppa um efstu sætin en að þessu sinni voru Andri og Helga ofan á. Fannst þau vera aðeins frískari en Valentín og Tinna.
Ungmenni F
Enn sem áður þá voru Siggi og Sara langbest í þessum flokki og í raun í öðrum gæðaflokki en pörin sem voru fyrir neðan. Vona bara að þau hafi metnaðinn og áhugann og þá tækifærin til þess að halda áfram vinnunni sem gæti skilað þeim góðri uppskeru á erlendri grundu.
Fullorðnir F
Held að Jón Eyþór og Denise hafi verið ánægð með sigurinn. Vorum einmitt að ræða að það væri dálítið gamaldags að vera í öðru og þriðja sæti c“) Fannst þau eiga þetta skilið. Halda svo áfram og stefna hærra. Siggi og Hanna tóku latinið í DSÍ Open og verður fróðlegt að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Mér finnst svo mikilvægt að keppnisdansarar setji sér markmið og stefni á þau með markvissum hætti. Ég vona að efstu pörin okkar hafi ákveðin markmið og stefni á þau. Er verið að æfa nógu mikið? Er verið að æfa rétt? Er verið að vinna með réttu erlendu þjálfurunum? Er verið að fara á réttar keppnir erlendis? Þetta eru bara nokkrar spurningar sem pörin eiga að vera að velta fyrir sér.
Næst á dagskrá er junior Blackpool og held ég að það verði á milli 10 og 15 pör frá Íslandi þetta árið. Held að við ættum að fá góðar fréttir úr juvenile flokknum. Svo er það maí mótið sem verður 9. og 10. maí í Laugardalshöllinni. Vonandi verður alger sprengja í skráningu.
Jæja, þetta var rosaleg helgi. Þvílík upplifun að sjá 13 pör í amateur ballroom og 17 pör í amateur latin. Og mörg paranna greinilega með mikinn metnað og leggja mikið á sig til þess að ná árangri.
Mér finnst þægilegt að fara í gegnum hópana í röð og fer þá yfir hópana sem eru lengst komnir.
Börn II K – Þessi hópur held ég að sé framtíðin hjá okkur. Pör sem hafa mikinn metnað og löngun til þess að ná langt. Það verður gaman að sjá hvort efstu pörin í þessum flokki ná árangri í junior Blackpool um næstu páska.
Unglingar I F – lítið um þennan hóp að segja. Sömu 3 pör og síðast og ekki mikil breyting. Væri gaman að sjá pörin úr Unglingum I K reyna sig á móti þessum pörum. Myndi vilja sjá meira flot og meira action hjá þessum hóp.
Unglingar II F – Skemmtilegt að sjá keppnina milli 2 efstu paranna og mér fannst Andri Fannar og Helga eiga skilið að vinna ballroomið. Á sama hátt fannst mér sanngjarnt að Valentin og Tinna unnu latinið.
Ungmenni F – Ekki mikil keppni í Ungmennum fyrir Sigga og Söru. Þau bæta sig jafnt og þétt en hafa ekki tekið stökk í nokkurn tíma.
Fullorðnir F – Nokkurt shokk fyrir Aðalstein og Rakeli að lenda í 3. sæti og hafa þau örugglega ekki búist við því. Mér fannst þau ekki ná sér á strik og hef ég séð þau dansa miklu betur. Vonandi nota þau þetta tækifæri og vinna í þeim hlutum sem þarf að vinna í. Siggi og Hanna voru flott saman og fannst mér Hanna dansa sérstaklega vel. Siggi er “villtur” og hefur þessum dómurum líkað vel við það. Sumir dómarar hefðu látið Sigga og Hönnu allt niður í 4. sæti og vonandi hefur Siggi þolinmæði til þess að vinna í hlutunum sem skipta máli. Mér fannst Jón Eyþór og Denise líta vel út og hefði ég viljað hafa þau ofar. Ballroomið í gær var allt í lagi en mér finnst vanta slatta upp á efstu pörin til þess að við getum farið að gera einhverjar rósir. Sigga og Söru finnst mér vanta vídd og þéttleika og meiri vinnu í gegnum gólfið. Þau eru dálítið of létt fyrir minn smekk. Jón Eyþór og Denise voru þroskaðri í hreyfingum en of stíf í toppnum til þess að eiga sjéns í Sigga og Söru. Mér finnst Jón Eyþór þurfa að gefa Denise meira pláss til þess að hún geti þá gefið meira til baka.
Næst á dagskrá er Copenhagen Open og verður gaman að sjá hvað gerist þar. Reikna með að flest topppörin fari þangað. Næsta mót hjá okkur er 7. og 8. mars og vona ég að ég sjái miklar breytingar á pörunum sem sýnir þá metnaðinn sem þau hafa.
Hef þetta stutt núna, þetta er búin að vera löng og ströng helgi og verður gaman að halda áfram að vinna með keppniskrökkunum og svo að byggja upp krakka sem verða vonandi keppnisdansarar í framtíðinni.
Danskveðja, Ragnar
Mér finnst alltaf gott og gaman þegar fólk sýnir frumkvæði og langar til að gera eitthvað sem er danstengt. Því tók ég vel í það þegar Aðalsteinn hafði samband og bað mig um að prófa að skrifa pistla fyrir hann til að birta á www.dansarinn.net. Þetta er fyrsti pistillinn og þó að ég skrifi núna um Reykjavík International þá er það ekkert endilega merki um að ég skrifi áfram bara um danskeppnirnar okkar.
Þar sem ég er nýgenginn í Dansráð Íslands þá er það viðurkennt að ég geti dæmt danskeppnir. Þessi dómaramál hjá okkur hér á Íslandi eru erfið. Við erum svo lítil og allir þekkja alla, hafa kennt hjá öllum eða þjálfað alla (næstum því). DSÍ hefur sínar móta og keppendareglur en þær eru gallaðar eins og flestir viðurkenna. Varðandi dómaramálin þá stendur t.d.:
B-6.4 Dómari skal víkja í dómgæslu ef barn viðkomandi dómara eða annað nánasta skyldmenni er að keppa í viðkomandi danskeppni. Með nánasta skyldmenni er átt við:
- foreldri
- systkini
- systkinabarn
- systkini eða systkinabörn maka
- barnabörn
Þetta á þó aðeins við um þann riðil sem barnið eða ættinginn keppir í.
Samkvæmt þessum reglum þá má dómari dæma stjúpbarn sitt. Ég vona að flestir aðrir setji stjúpbarn sitt í sama flokk og blóðtengt barn. Ég geri það alla vega.
Ef við skoðum svo reglur alþjóðadanssambandsins þá stendur t.d.:
An adjudicator shall not judge a competition, and shall retire from the panel adjudicating that
competition, where any person competing in that competition is a member of that adjudicator’s immediate or extended family, including de facto relationships, or where that adjudicator has a personal relationship to or with any competitor in the competition which makes it inappropriate for him/her to serve as an adjudicator. For greater clarity, the words “immediate and extended family” include anyone to whom the adjudicator is related by blood or marriage, to the degree of first cousin or closer, or by adoption order, or with whom the judge lives or cohabits.
Ég vil leggja áherslu á það sem er undirstrikað. Flestir íslenskir dómarar sem mér finnst hafa næga reynslu og þekkingu til þess að dæma falla þá úr leik vegna þessa. Dansinn er svo persónulegur og að sjálfsögðu myndast persónuleg tengsl við þá sem maður hefur þjálfað eða kennt.
Jæja, nóg um dómaramálin. Þau eru það umdeild að hægt væri að ræða þau endalaust eins og hefur verið gert hér á Íslandi í mörg mörg ár.
Mér fannst umgjörðin á Reykjavík Int´l til fyrirmyndar og greinilegt að mótshaldarar leggja mikinn metnað í að gera vel. Restina af pistlinum ætla ég að nota til þess að fara yfir riðlana og þá sérstaklega hvernig ég dæmdi og afhverju. Mér finnst að dómarar eigi að hafa þekkingu til þess að geta útskýrt afhverju þeir dæma svona og svona. Ég hef farið yfir úrslitin og eins og venjulega eru ekki allir sammála, sem betur fer því þá væri þetta dálítið þurrt.
Ætla að fara yfir K og F hópana sem ég dæmdi. Ég dæmdi ekki Börn II K og Ungmenni F vegna fjölskyldutengsla.
Unglingar I K Standard: Í þessum hópi voru nokkuð jafnir dansarar. Til dæmis fékk parið sem lenti í fyrsta sæti 4 sætið í Waltz frá tveimur dómurum. Parið í öðru sæti fékk 5. sætið frá tveimur dómurum. Til þess eru við með Skating kerfið sem jafnar þetta út og á endanum er það yfirleitt besta parið sem vinnur. Ég merkti reyndar parið í 3. sæti til sigurs. Mér fannst þau sýna góða nýtingu á tónlistinni og voru mjög samtaka í hreyfingum sem gaf þeim þá gott jafnvægi.
Unglingar I K Latin: Í þessum hópi var ég langt frá því að vera sammála meirihlutanum. Parið sem ég merkti í fyrsta sæti lenti í 4. sæti. Mér fannst þau sýna langmestan kraft og snerpu og mat ég það til sigurs.
Unglingar II K Standard: Hérna voru flestir dómararnir sammála og sýndu sigurvegarnir allan tíman að þeir áttu sigurinn skilið.
Unglingar II K Latin: Sama hér. Greinilegt að sigurvegararnir eru með góðan grunn og góða tækni. Þau eru líklega að undirbúa sig fyrir keppni í F flokki og verður gaman að sjá hvernig þau standa sig í þeim flokki.
Ungmenni K Standard: Í þessum flokki merkti ég parið sem lenti í 2. sæti til sigurs. Mér fannst það par sýna betri dans og meiri mýkt í hreyfingum.
Ungmenni K Latin: Það var gaman að sjá hvað þessir krakkar eru jafnir og greinilega mikill metnaður í að gera betur en hinir. Þau kepptu í 4 dönsum og gaf ég pörunum í fyrstu 2 sætunum sitthvor 2 fyrstu sætin. Fannst parið sem lenti í fyrsta sæti með hreinni línur og meira samræmi í hreyfingum en parið í öðru sæti nýtti tónlistina betur.
Unglingar I F: Lítið að segja um þennan hóp. Sigurvegarnir greinilega á góðri leið.
Unglingar II F Standard: Það er alltaf gaman að dæma þegar maður þarf að velja á milli tveggja para sem eru álíka góð. Annað parið með meiri dansþroska og hreinna hald og líkamsstöðu. Hitt parið með meiri músík í sér. Í þessu tilfelli valdi ég parið með meiri dansþroska fram yfir og lenti það í fyrsta sæti.
Unglingar II F Latin: Hér voru allir nema 1 dómari sammála um sigurvegarana. Nokkuð góður þroski í hreyfingum og flottar línur. Hefði viljað fá parið í þriðja sætinu upp í annað sætið einmitt vegna þess að þau sýndu mikla músik og þroskaðar hreyfingar.
Fullorðnir F Standard: Það var mikill munur á fyrsta og öðru sætinu í þessum flokki og áttu sigurvegararnir sigurinn skilið. Ég vil samt alltaf meira og hefði ég viljað sjá meira frelsi í haldinu til þess að fá ennþá meira frá dömunni og þá hefði parið fyllt enn betur upp í tónlistina.
Fullorðnir F Latin: Í þessum flokki vorum við með danska gesti og voru þau langbest á gólfinu. Þetta par er á top 5 í Danmörku og greinilega að gera góða hluti.
Ég bíð spenntur eftir næstu keppni sem verður 7. og 8. febrúar í Laugardalshöllinni að venju. Þá ættu öll pörin að vera með og því keppnin að vera jafnari og meira spennandi því það er Íslandsmeistaramótið í F flokkunum. Ég vona að þau pör sem vinna sér inn rétt til þess að fara á heims- og evrópumeistaramótin nýti sér réttinn eftir bestu getu.
Danskveðja, Ragnar Sverrisson
