Hvað er www.dansarinn.net?
Dansarinn.net er íslenskur dansvefur sem birtir fréttir, greinar og myndir tengdum dansatburðum um allan heim. Aðal áherslan er þó á íslenskum dönsurum.
Úrslit móta
Við munum gera okkar besta til að birta öll úrslit af íslenskum dönsurum, og munum sjá til þessa að úrslit af íslenskum mótum verði aðgengileg á vefnum.
Myndasafn
Þær myndir sem verða til sýnis af íslenskum keppnum og atburðum verða til sölu fyrir þá sem hafa áhuga á. Þegar fyrstu myndaalbúmin eru búin að birtast verður aðgengilegur tengill þar sem hægt verður að panta myndir eftir númerum. Myndirnar verða seldar á sanngjörnu og viðráðanlegu verði.
Myndir frá keppnum erlendis þar sem íslenskir keppendur taka þátt, munum við svo birta eftir bestu getu. Það er þó háð höfundarétti.
Frekari upplýsingar og greinaskrif
Allir þeir sem hafa áhuga á að birta grein eða frétt á vefnum geta haft samband í gegnum adalsteinn.kjartansson@gmail.com. Til að tryggja að greinin verði birt þarf hún að uppfylla nokkur grunnskilirði:
- Vera málefnaleg
- Í hæfilegri lengd
- Hafa tilgang (ekki bara nöldur)
Listinn er ekki tæmandi.
Þeir sem vilja hafa samband vegna annara mála – hafið samband við Aðalstein Kjartansson í gegnum adalsteinn.kjartansson@gmail.com.
